Skagfirski kammerkórinn
Stofndagur kórsins var 6. janúar árið 2000. Stofnandi hans var Sveinn Arnar Sæmundsson þáverandi organisti Miklabæjarprestakalls ásamt nokkrum félögum sem höfðu starfað með honum í sönghóp. Sá sami hópur stóð fyrir dagskránni Kirkjan og Hallgrímur Pétursson á kristnihátíðarári 1999. Hallgrímsdagskráin var flutt í Grafarkirkju á Höfðaströnd, í Hofstaðakirkju, í Sauðárkrókskirkju og í Glaumbæjarkirkju, við opnun kirkjumunasýningar á Hólum í Hjaltadal og í Reykjakirkju í dymbilviku árið 2000. Kynnt voru kveðskapur sálmaskáldsins og hlutverk hans í kirkjulegum athöfnum nútímans og áhrif á hefðir kirkjuársins.
Árið 2000 tók kórinn þátt í dagskrá um kristnihald á árþúsundamótum í Glaumbæjarkirkju og hélt vortónleika og jólatónleika í Hóladómkirkju, sem orðnir eru fastir árlegir liðir í starfseminni. Kórinn hefur víða sungið á undanförnum árum, í heima- og í nágrannabyggðum. Sjá annál tónleika efst til hægri.
Markmið kórsins er að flytja og kynna þjóðlög og kirkjulega tónlist, sem sjaldan heyrist utan hefðbundinna kirkjulegra athafna. Kórinn leggur sig eftir að syngja fallega tónlist við innihaldsríka texta án undirleiks (a capella). Oft eru tekin fyrir ákveðin þemaefni í þeirri viðleitni að tengja tónskáld, textahöfunda, tíðaranda.
Starf kórsins er fjármagnað með styrkjum og aðgangseyri. Helstu styrktaraðilarnir hafa verið þessir: Menningarsjóður Kaupfélags Skagfirðinga, Menningarsjóður Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Akrahreppur, Menningarsjóður Norðurlands vestra, Sparisjóður Skagafjarðar og Héraðssjóður Skagafjarðarprófastsdæmis. Menningarsjóður Félagsheimila styrkti kórinn í tvígang á áður en hann var lagður af.

Kórinn æfir einu sinni í viku yfir vetrartímann.
Kórstjórar hafa verið: Sveinn Arnar Sæmundsson 2000-2002, Páll Barna Szabó frá 2002 og Jóhanna Marín Óskarsdóttir frá hausti 2005.

Kórfélagar hafa verið mismargir eftir árum, eða á milli 12-20 talsins.